Ábyrg bankastarfsemi

Við leggjum ríka áherslu á umhverfis- og félagsþætti í starfsemi Arion banka og góða og vandaða stjórnarhætti. Það hvernig bankar stýra og miðla fjármagni getur haft afgerandi áhrif á framgang sjálfbærrar þróunar í hverju landi fyrir sig og á heimsvísu og því eru mestu áhrif bankans í tengslum við umhverfi og samfélag fólgin í lánveitingum og fjárfestingum fyrir hönd viðskiptavina.

Kjarninn í stefnu bankans er að standa öðrum framar með snjöllum og traustum fjármálalausnum sem skapa viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu verðmæti til framtíðar. Yfirskrift stefnu bankans um sjálfbærni er Saman látum við góða hluti gerast og felur meðal annars í sér að við viljum vera öðrum fyrirmynd um ábyrga og arðbæra viðskiptahætti sem taka mið af umhverfi og samfélagi. Hjá Arion banka leggjum við áherslu á að samfélagsábyrgð og sjálfbærni séu hluti af daglegri starfsemi bankans, ákvarðanatöku og ferlum.

Gildi bankans köllum við hornsteina og eiga þeir að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku og í öllu sem starfsfólk bankans gerir. Hornsteinarnir koma inn á hlutverk, hugarfar og hegðun en þeir eru: gerum gagn, látum verkin tala, komum hreint fram og finnum lausnir. Siðareglur bankans eru síðan viðmið fyrir starfsfólk til að stuðla að ábyrgri ákvarðanatöku.

Stefna Arion banka um sjálfbærni

Við viljum vera öðrum fyrirmynd um ábyrga og arðbæra viðskiptahætti sem taka mið af umhverfi, efnahagslífi og því samfélagi sem við störfum í. Við setjum okkur í spor viðskiptavina og leitumst stöðugt við að gera betur í dag en í gær.

Við störfum á eftirsóknarverðum vinnustað þar sem þekking skapar verðmæti til framtíðar, viðskiptavinum, fjárfestum og samfélaginu öllu til góða.

 

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá helstu áhersluatriði Arion banka í tengslum við sjálfbærni.

 

Skýrslugjöf um sjálfbærni

Upplýsingar í árs- og sjálfbærniskýrslu eru unnar og birtar samkvæmt Global Reporting Initiative, GRI Standards, sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að miðla upplýsingum tengdum samfélagsábyrgð og sjálfbærni á gegnsæjan og samanburðarhæfan hátt.

Við miðlun upplýsinga um sjálfbærni í starfseminni er einnig notast við UFS viðmið Nasdaq á Norðurlöndunum og 10 grundvallarviðmið Global Compact, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð. Þá er horft til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Jafnframt er gerð grein fyrir framvindu innleiðingar á meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi, Principles for Responsible Banking (PRB), en Arion banki varð aðili að meginreglunum í september 2019.

Deloitte hefur í þriðja sinn veitt álit með takmarkaðri vissu á upplýsingagjöf í tengslum við sjálfbærni í árs- og sjálfbærniskýrslu Arion banka. Deloitte hefur jafnframt í fyrsta sinn veitt álit með takmarkaðri vissu á framvinduskýrslu bankans til PRB.  
 

Arion banki viðheldur framúrskarandi einkunn
í UFS áhættumati Reitunar

Arion banki hlaut einkunnina „framúrskarandi“ í UFS áhættumati Reitunar á árinu 2022, fékk 90 stig af 100 mögulegum og er því í flokki A3. Matið byggist á árangri bankans á sviði umhverfis- og félagsþátta og stjórnarhátta. Bankinn er vel fyrir ofan meðaltal í öllum flokkum en 35 aðilar hafa farið í gegnum matið. Er þetta þriðja árið í röð sem bankinn fær þessa einkunn. Nánari upplýsingar um niðurstöður Reitunar má finna hér.

     

Arion banki í fremstu röð að mati Sustainalytics

Bankinn var á árinu 2022 metinn af alþjóðlega matsfyrirtækinu Sustainalytics sem sérhæfir sig í mati á áhættu fyrirtækja þegar kemur að umhverfismálum, félagsþáttum og stjórnarháttum. Niðurstaðan var jákvæð og er Arion banki að mati Sustainalytics í hópi þeirra banka sem standa hvað fremst í þessum málum á heimsvísu. Á skalanum 0-100 hlaut bankinn 12 stig þar sem færri stig þýða minni áhættu og er það því mat Sustainalytics að lítil hætta sé á verulegu fjárhagslegu tjóni vegna UFS þátta hjá bankanum. Arion banki er í efstu 6% þegar horft er til árangurs ríflega eitt þúsund banka um heim allan sem Sustainalytics hefur metið og í efstu 4% þegar horft er til um 400 svæðisbundinna banka.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Framkvæmdastjórn Arion banka hefur samþykkt sex heimsmarkmið sem bankinn leggur megináherslu á. Markmiðin sem unnið er sérstaklega að eru markmið 5 um jafnrétti kynjanna, markmið 7 um sjálfbæra orku, markmið 8 um góða atvinnu og hagvöxt, markmið 9 um nýsköpun og uppbyggingu, markmið 12 um ábyrga neyslu og framleiðslu og markmið 13 sem snýr að aðgerðum í loftslagsmálum.

Starfsemi bankans, þar á meðal aðgerðir í jafnréttismálum, stefna og aðgerðir í umhverfis- og loftslagsmálum, stuðningur við frumkvöðla og atvinnulífið í heild, framsækni í stafrænni þjónustu sem og virk þátttaka í uppbyggingu efnahagslífsins, ríma vel við þessi heimsmarkmið.

Stjórnarhættir sjálfbærnimála og áhættustýring

Í Arion banka er starfandi sjálfbærninefnd og er stýring á áhættum í tengslum við umhverfis- og félagsþætti og stjórnarhætti skilgreind sem hluti af áhættustýringarkerfi bankans. Bankastjóri er formaður nefndarinnar sem hefur það meginhlutverk að fylgjast með frammistöðu bankans í tengslum við stefnu og skuldbindingar á sviði sjálfbærni og tryggja að tillit sé tekið til UFS þátta í ákvarðanatöku og áætlunum. Græn fjármögnunarnefnd og jafnréttisnefnd bankans heyra undir nefndina.

Í sjálfbærninefnd sitja, auk bankastjóra, framkvæmdastjórar viðskiptabankasviðs og fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs, markaða, upplifunar viðskiptavina og fjármálasviðs. Framkvæmdastjóri áhættustýringar, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni og sjálfbærnistjóri sitja fundi án atkvæðisréttar. Þá sitja fulltrúar dótturfyrirtækjanna Stefnis og Varðar fundina eftir atvikum. Bankinn hefur sett sér áhættustefnu um sjálfbærni sem er samþykkt af stjórn og er endurskoðuð árlega. Í þeirri stefnu kemur meðal annars fram að bankinn leitist við að tryggja að starfsemi hans og þjónusta hafi ekki í för með sér neikvæð áhrif á fólk eða umhverfi. Einnig kemur þar fram að bankinn styðji aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum sem sett hefur verið fram með það að markmiði að standast skuldbindingar Parísarsamkomulagins og að metnaðarfull áform um kolefnishlutleysi Íslands árið 2040 náist. Á árinu var lykilmælikvörðum í tengslum við umhverfis- og félagsþætti og stjórnarhætti bætt við í mánaðarlega áhættuskýrslu til stjórnar og áhættuvilji bankans í tengslum við þá skilgreindur.

Í byrjun árs 2022 var framkvæmt sérstakt áhættumat í tengslum við umhverfis- og félagsþætti og stjórnarhætti bankans og var matið yfirfarið í ársbyrjun 2023. Helstu áhættur sem snúa að félagsþáttum snúa að jafnrétti og fjölbreytileika starfsfólks, upplýsingagjöf og samskiptum við hagaðila. Í tengslum við umhverfismál voru ófullnægjandi aðgerðir í umhverfis- og loftslagsmálum í tengslum við vörur og þjónustu, fylgni starfsfólks við stefnu bankans í umhverfis- og loftslagsmálum og hættan á grænþvotti metnar sem helstu áhættur. Niðurstöðurnar sýndu jafnframt að helstu áhættur bankans í tengslum við stjórnarhætti snúa að vörnum gegn peningaþvætti og þekkingu á viðskiptavinum, persónuvernd og upplýsingagjöf í tengslum við UFS þætti. Stýringar á fyrrgreindum áhættum innan bankans voru ýmist metnar fullnægjandi eða sterkar.

Í lok árs samþykkti stjórn bankans uppfærslu á kaupaukakerfi fyrir fastráðið starfsfólk bankans sem byggir á skýrum markmiðum og er háð ströngum skilyrðum Fjármálaeftirlitsins. Á árinu 2023 eru bæði fjárhagslegir og ófjárhagslegir mælikvarðar hluti af kerfinu en þeir ófjárhagslegu tengjast meðal annars árangri varðandi heildaránægju viðskiptavina, þekkingu á viðskiptavinum (KYC), fræðslu og jafnréttismálum.

Arion banki hefur innleitt stefnu um aðgerðir gegn fjármunabrotum, svo sem peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka, mútum og spillingu og markaðssvikum. Á grundvelli þessarar stefnu er lögð áhersla á að þekkja alla viðskiptavini og skilja viðskipti þeirra svo bankanum sé kleift að greina grunsamleg viðskipti. Nánari upplýsingar um stjórnskipulag og áhættustýringu vegna UFS og aðgerðir gegn fjármunabrotum má finna í áhættuskýrslu bankans fyrir árið 2022.

Ábyrgar lánveitingar og fjárfestingar

Arion banki er aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi, Principles for Responsible Banking. Markmið meginreglnanna er að tengja starfsemi banka við mikilvæg alþjóðleg markmið og skuldbindingar á sviði sjálfbærni, eins og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og Parísarsamkomulagið. Á árinu 2022 var líkt og undanfarin ár áfram unnið að innleiðingu meginreglnanna.

Til að aðlaga stefnu okkar að meginreglum PRB og markmiðum Parísarsamkomulagsins höfum við sett okkur umhverfis- og loftslagsstefnu og markmið sem eru endurskoðuð og uppfærð árlega. Nánari upplýsingar um umhverfis- og loftslagsstefnu bankans og markmið má finna hér. Í útlánastefnu bankans er lögð áhersla á sjálfbærni og að auka hlut grænna lánveitinga og hafa verið sett mælanleg markmið þar um. Lánareglur bankans kveða jafnframt á um að horft skuli til umhverfis, samfélags og stjórnarhátta við mat á lánveitingum. Unnið verður að því á árinu 2023 að auka vægi þessara þátta við mat á lánveitingum.

Við viljum styðja viðskiptavini okkar áfram til góðra verka og byggja upp sterkt og gott viðskiptasamband. Til að stuðla að vexti viðskiptasambandsins teljum við mikilvægt að fyrirtæki í viðskiptum hafi ekki neikvæð áhrif á fólk eða náttúru. Eitt af markmiðum bankans í tengslum við sjálfbærni á árinu 2022 var að hefja þá vegferð að setja fram sjálfbærnistefnur í mismunandi atvinnugreinum. Unnið var að gerð fyrstu stefnunnar á árinu sem sneri að sjávarútvegi og í ársbyrjun 2023 samþykkti sjálfbærninefnd bankans stefnuna. Við gerð stefnunnar var fengið álit frá hagsmunaaðilum og horft til áætlana og aðgerða í tengslum við umhverfis- og félagsþætti og stjórnarhætti í þessari mikilvægu undirstöðugrein íslensks efnahagslífs sem jafnframt skipar stóran sess í útlánabók bankans.

Sjálfbærnistefna Arion banka í sjávarútvegi

Arion banki gaf út heildstæða græna fjármálaumgjörð á árinu 2021 og hefur síðan þá farið í fjórar grænar skuldabréfaútgáfur sem byggja á þeirri umgjörð, þar af tvær útgáfur á árinu 2022. Græn innlán viðskiptavina héldu áfram að vaxa á árinu og mikil aukning varð í lánveitingum til viðskiptavina vegna kaupa á bílum sem ganga fyrir 100% endurnýjanlegum orkugjöfum.

Arion banki og Stefnir, dótturfélag bankans, voru með 1.298 milljarða í stýringu í árslok 2022. Þegar kemur að eignastýringu hefur Arion banki innleitt í starfshætti sína og starfsreglur verklag ábyrgra fjárfestinga sem felur í sér að við stýringu eigna er horft til þriggja grunnþátta sjálfbærni; umhverfis- og félagsþátta og stjórnarhátta. Bankinn er aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar, Principles for Responsible Investment (PRI), og hefur frá árinu 2019 birt framvinduskýrslu. Þannig er ekki aðeins horft til fjárhagslegra þátta í eignastýringu heldur einnig annarra þátta sem taldir eru viðeigandi við greiningu á fjárfestingum og uppbyggingu eignasafna viðskiptavina.

Nánari upplýsingar um Græn fjármál Arion banka

Ábyrg innkaup

Í samræmi við það meginmarkmið í stefnu bankans að skapa verðmæti til framtíðar, viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu til góða, leitar bankinn í nærumhverfi sitt eftir þjónustu eins og frekast er unnt að því gefnu að birgjar standist kröfur um gæði og hagkvæmni.

Nær allir stærstu og mikilvægustu birgjar bankans starfa á Íslandi. Þrátt fyrir að aðfangakeðja bankans teygi sig út fyrir landsteinana er fyrsti hlekkur hennar oftast á heimamarkaði. Þannig er einungis einn erlendur birgir á meðal 10 stærstu birgja bankans og aðeins níu á meðal þeirra 50 stærstu. Stærsti hluti erlendra birgja bankans tengist innkaupum á hugbúnaði, ráðgjöf og þjónustu tengdri upplýsingatækni. Vélbúnaður er því sem næst allur keyptur með milligöngu innlendra aðila.

Innkaup skiptast með eftirfarandi hætti á milli 50 stærstu birgja: innlendir 86% og erlendir 14%.

Innkaup skiptast með eftirfarandi hætti á milli 50 stærstu birgja
%

Í umhverfis- og loftslagsstefnu bankans kemur fram að við gerum þá kröfu til birgja að þeir taki mið af umhverfis- og loftslagsáhrifum í starfsemi sinni og að þegar valið stendur á milli tveggja sambærilegra tilboða munu loftslags- og umhverfissjónarmið ráða ákvörðun okkar. Innkaupareglur bankans taka mið af þessu.

Í birgjamati bankans, sem nú er á rafrænu formi, er lögð áhersla á frammistöðu birgja varðandi umhverfis- og loftslagsmál en einnig jafnréttismál og vinnurétt. Birgjamatið er bæði á íslensku og ensku og er það lagt fyrir birgja yfir ákveðnum stærðarmörkum. Á árinu fóru 92% nýrra birgja sem falla undir þessa skilgreiningu og eru með samning við bankann í gegnum matið. Við metum reglulega frammistöðu birgja sem við eigum í viðvarandi viðskiptasambandi við en allir stærstu birgjar bankans sem bankinn hefur gert útvistunarsamninga við fóru í gegnum frammistöðumat á árinu.

Siðareglur birgja, sem snúa að sjálfbærni og samfélagsábyrgð, eru aðgengilegar á vefsíðu bankans. Siðareglurnar koma fram í rafrænu birgjamati og eru hluti af samningum bankans.

Verktakar

Í byrjun árs var tekið upp nýtt ferli sem snýr að verktökum og eru þeir skilgreindir í þrjá flokka eftir mismunandi tegundum aðgangsheimilda og umfangi. Verktakar eru aðilar sem vinna ákveðin verkefni fyrir bankann, til styttri eða lengri tíma, en eru ekki starfsmenn hans. Heildarfjöldi verktaka sem voru virkir í lok árs 2022 var 282. Dæmi um verktaka eru aðilar sem sinna fasteignaþjónustu og rekstri á eignum bankans, viðhaldi og ræstingu og endurskoðendur og ráðgjafar. Flestir verktakar sem starfa fyrir bankann eru forritarar, eftirlitsaðilar sem sinna meðal annars öryggiseftirliti og aðrir sérfræðingar.

Framlög til stjórnmálastarfs

Arion banki hefur sett sér stefnu um framlög til stjórnmálastarfs. Í stefnunni kemur meðal annars fram að bankinn styrki þau stjórnmálasamtök sem bjóða fram á landsvísu við alþingiskosningar og óska sérstaklega eftir fjárstuðningi frá bankanum. Skilyrði er að samtökin eigi fulltrúa á Alþingi.

Engin framlög voru til stjórnmálastarfs á árinu 2022.

Stefna Arion banka um framlög til stjórnmálastarfs

Ábyrg vörustjórnun, vöruframboð og markaðssetning til einstaklinga

Arion banki fylgir stefnu um ábyrga vörustjórnun, vöruframboð og markaðssetningu og bera framkvæmdastjórar viðskiptabankasviðs og upplifunar viðskiptavina ábyrgð á eftirfylgni stefnunnar. Í stefnunni kemur meðal annars fram að bankinn leitist við að bjóða upp á vörur og þjónustu sem eru viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu til hagsbóta. Verklagsreglur um vörustjórnun eru skilgreindar og taka mið af viðmiðunarreglum Evrópska bankaeftirlitsins (EBA) um eftirlit með vöruþróun og vörustjórnun á smásölumarkaði. Þróun á þessum verklagsreglum hélt áfram á árinu.

Bankinn gætir hagsmuna viðskiptavina við þróun á vörum bankans og tryggir eins og kostur er að þeir fái vörur og þjónustu við sitt hæfi. Bankinn leggur mikið upp úr því að starfsfólk þekki vel til þeirra reglna sem gilda um starfssvið þeirra og sem liður í því var innleidd árleg fræðsla um ábyrga vörustjórnun og markaðssetningu. Starfsfólk sem kemur að vöruþróun, svo sem vörustjórar, starfsfólk í markaðsdeild og stjórnendur, tóku þátt í skyldufræðslu og tæplega 80% þeirra luku við fræðsluna. Bankinn skráir og flokkar ábendingar og kvartanir eftir vöru og eðli þjónustunnar og miðlar þeim upplýsingum árlega til Seðlabanka Íslands.

Stefna um ábyrga vörustjórnun, vöruframboð og markaðssetningu til einstaklinga

Skuldbindingar, vottanir og þátttaka
í samstarfi á sviði sjálfbærnimála

UNEP FI og meginreglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi – PRB

Í júlí 2019 gerðist Arion banki aðili að UNEP FI, United Nations Environment Programme Finance Initiative (UNEP FI), sem er samstarfsvettvangur umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna og fyrirtækja og stofnana í fjármálageiranum víðs vegar um heiminn. Þar er fjallað um áskoranir í samfélags- og umhverfismálum.

Í september sama ár gerðist Arion banki aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi, Principles for Responsible Banking (PRB), sem mótaðar voru af UNEP FI og 30 alþjóðlegum bönkum. Nánari upplýsingar um aðild Arion banka að meginreglunum má sjá hér.

Hér má sjá samantekt á framgangi innleiðingar bankans á meginreglum SÞ um ábyrga bankastarfsemi.

Samstarfsvettvangur um loftslagsmál og grænar lausnir – Grænvangur

Arion banki er einn af stofnaðilum Grænvangs, samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Grænvangur leiðir saman íslensk fyrirtæki og stjórnvöld til að vinna að sameiginlegu markmiði um kolefnishlutlaust Ísland 2040. Auk þess kynnir Grænvangur íslenskar grænar lausnir erlendis í samstarfi við Íslandsstofu undir merkjum Green by Iceland.

Í ársbyrjun 2020 undirritaði bankinn áskorunina Hreinn, 2 og 3! á vegum Grænvangs þar sem skorað er á fyrirtæki að lýsa yfir orkuskiptum í vegasamgöngum. Í verkefninu felst að nýskráningar fyrirtækjabíla sem knúnir eru áfram af jarðefnaeldsneyti verði lagðar af fyrir árið 2023. Með því verður Ísland í forystu á heimsvísu hvað varðar notkun umhverfisvænna orkugjafa. Er þessi yfirlýsing í takt við markmið sem sett hafa verið í tengslum við umhverfis- og loftslagsstefnu bankans þar sem fram kemur að ekki verði keyptir inn bílar nema þeir noti 100% endurnýjanlega orkugjafa frá og með árinu 2023.

Meginreglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar – UN PRI

Árið 2017 gerðist Arion banki aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar, Principles for Responsible Investment (UN PRI). Meginreglunum er ætlað að hjálpa fjárfestum að skilja áhrif umhverfisþátta, félagsþátta og stjórnarhátta (UFS) á fjárfestingar og styðja þannig við að aðilar að meginreglunum taki ófjárhagslega þætti inn í fjárfestingarákvarðanir sínar. Framvinduskýrsla eignastýringar bankans um ábyrgar fjárfestingar er birt árlega. Sjá má nánari upplýsingar um ábyrgar fjárfestingar í umfjöllun um markaði.

UN Global Compact – sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja

Arion banki hefur verið aðili að UN Global Compact, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja, frá árinu 2016. Í sáttmálanum eru sett fram 10 grundvallarviðmið sem snúa að mannréttindum, vinnumarkaði, umhverfi og baráttu gegn spillingu. Bankinn skilar árlega framvinduskýrslu til Global Compact.

IcelandSIF – félag íslenskra fjárfesta um ábyrgar fjárfestingar

Arion banki hefur verið virkur þátttakandi í mótun og þróun ábyrgra fjárfestinga á Íslandi og var meðal stofnaðila IcelandSIF, félags íslenskra fjárfesta um ábyrgar fjárfestingar, árið 2017. Bankinn hefur í gegnum árin átt fulltrúa í stjórn og vinnuhópum á vegum samtakanna. Stjórnarformaður IcelandSif er Kristbjörg M. Kristinsdóttir, fjármálastjóri Stefnis, dótturfélags Arion banka.

Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Arion banki hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum að undangengnu formlegu mati sem byggir á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland gefa út. Arion banki fékk fyrst viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti árið 2016. Viðurkenningin er veitt í kjölfar ítarlegrar úttektar óháðs aðila á stjórnarháttum bankans, s.s. starfsháttum stjórnar, undirnefnda og stjórnenda. Viðurkenningin gildir í þrjú ár í senn. Sjá nánari upplýsingar um stjórnarhætti Arion banka hér og í sjálfbærniuppgjöri fyrir árið 2022.

Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð

Arion banki hefur um árabil verið aðili að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Hlutverk Festu er að auka þekkingu á samfélagsábyrgð og sjálfbærni fyrirtækja, stofnana og hvers kyns skipulagsheilda. Bankinn studdi í ár sérstaklega við störf Festu með viðbótarframlagi og er þar með í hópi fyrirtækja sem flokkast sem kjölfestur.

Loftslagsyfirlýsing Festu og Reykjavíkurborgar

Árið 2015 gerðist Arion banki aðili að loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar ásamt rúmlega hundrað öðrum fyrirtækjum. Meðal verkefna á sviði loftslagsmála er að ná utan um umhverfisáhrif starfseminnar og að draga markvisst úr neikvæðum áhrifum hennar. Við höfum birt umhverfisuppgjör bankans árlega síðan 2016. Nánari upplýsingar um umhverfisuppgjör Arion banka má finna hér og í sjálfbærniuppgjöri fyrir árið 2022.

Viljayfirlýsing um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar

Arion banki varð aðili að viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar þann 25. september 2020. Forsætisráðuneytið, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) og Landssamtök lífeyrissjóða (LL) unnu að mótun yfirlýsingarinnar í víðtæku samráði við fulltrúa helstu aðila á fjármálamarkaði. Viljayfirlýsingin er í takti við stefnu Arion banka og markmið í þágu aukinnar sjálfbærni.

Jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins

Arion banki fékk á haustmánuðum 2018 jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins eftir að hafa farið í gegnum endurvottun frá BSI á Íslandi og var þar með fyrstur banka til að hljóta merkið. Bankinn fékk upphaflega Jafnlaunavottun VR árið 2015, einnig fyrstur banka, og hefur farið í gegnum launagreiningar árlega síðan þá. Sjá nánar um jafnréttismál í umfjöllun um mannauð og í sjálfbærniuppgjöri bankans fyrir árið 2022.

Jafnréttissáttmáli UN Women og UN Global Compact

Frá árinu 2014 hefur bankinn verið aðili að Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. Jafnréttissáttmálinn er alþjóðleg yfirlýsing og samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við innleiðingu ábyrgra starfshátta, óháð landi og atvinnugrein, og snúa viðmiðin fyrst og fremst að kynjajafnrétti. Sjá nánari upplýsingar í umfjöllun um jafnréttismál í Arion banka og í sjálfbærniuppgjöri.

Jafnvægisvog FKA

Benedikt Gíslason bankastjóri undirritaði á árinu 2020 viljayfirlýsingu um Jafnvægisvogina þar sem fram kemur að Arion banki ætli að vinna markvisst að því næstu árin að jafna hlut kynja í efsta lagi stjórnunar. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA).

     

Aspiration og Seven Glaciers

Í byrjun árs 2023 gerðu Arion banki og Aspiration samning um kaup á vottuðum kolefniseiningum. Kaupin fóru fram fyrir tilstilli Seven Glaciers á Íslandi og er um að ræða 600 vottaðar og virkar kolefniseiningar. Einingarnar eru mótvægisaðgerð Arion banka vegna losunar í eigin rekstri á árinu 2022, meðal annars vegna húsnæðis, bíla, flugferða, sorps og samgangna starfsfólks til og frá vinnu.

UFS viðmið Nasdaq

UFS viðmið Nasdaq á Norðurlöndunum snúa að upplýsingagjöf um starfsemi og áhrif skráðra fyrirtækja út frá umhverfis- og félagsþáttum og stjórnarháttum (UFS). Frá árinu 2016 hefur Arion banki nýtt viðmiðin við upplýsingagjöf um sjálfbærni en þau tóku formlega gildi árið 2017 og önnur útgáfa leiðbeininga var gefin út árið 2019. Sjá upplýsingagjöf út frá UFS viðmiðunum í sjálfbærniuppgjöri.

PCAF – Partnership for Carbon Accounting Financials

Árið 2021 gerðist Arion banki aðili að Partnership for Carbon Accounting Financials (PCAF). Um er að ræða alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálafyrirtækja sem hefur það meginmarkmið að samræma mat á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda (GHL) sem fjármálafyrirtæki fjármagna í gegnum lánveitingar og fjárfestingar. Arion banki birti sína fyrstu skýrslu um fjármagnaðan útblástur í árslok 2022 sem byggir á aðferðafræði PCAF. Mat á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda sem fjármögnuð er í gegnum lánveitingar og fjárfestingar er forsenda þess að bankinn geti sett sér markmið varðandi samdrátt í losuninni og er það næsta skref. 

CDP

Arion banki hefur frá árinu 2019 gert grein fyrir áhrifum sínum varðandi loftslagsmál í gegnum CDP, sem er alþjóðleg sjálfseignarstofnun sem hefur það markmið að búa til vettvang fyrir samræmda upplýsingagjöf varðandi umhverfismál, meðal annars fyrir fjárfesta, borgir, ríki og stjórnvöld. Yfir 13.000 fyrirtæki birtu umhverfisgögn í gegnum CDP á árinu 2022. Nánari upplýsingar um CDP má finna hér.

TCFD

Til að öðlast betri yfirsýn yfir áhættu tengda loftslagsbreytingum hefur bankinn í þriðja sinn nýtt sér tilmæli Task Force on Climate-related Financial Disclosures (TCFD). Umfjöllun um sjálfbærniáhættu í áhættuskýrslu bankans fyrir árið 2022 byggir meðal annars á þessum viðmiðum og þar er að finna greiningu á lánasafni bankans út frá loftslagsáhættu. Bankinn gerðist formlega aðili að TCFD í febrúar 2022. Sjá nánari upplýsingar í áhættuskýrslu Arion banka fyrir árið 2022.

Stuðningur við samfélagið

Arion banki heldur og kemur að fjölda fræðslufunda, ráðstefna og viðburða og er þannig virkur þátttakandi í samfélaginu. Fjöldi gesta sótti bankann heim á árinu og við vorum einnig þátttakendur í fjölmörgum ráðstefnum og sýningum.

Meðal viðburða sem Arion banki stóð fyrir á árinu

  • Nemendur á framhaldsskólastigi komu í heimsókn í höfuðstöðvar og fengu fræðslu um fjárfestingar.

  • Í samstarfi við Félag kvenna í atvinnurekstri héldum við glæsilegan sýnileikadag þar sem yfir 300 konur úr atvinnulífinu komu saman.

  • Aðalhagfræðingur bankans, Erna Björg Sverrisdóttir, hélt kynningar á hagspá fyrir viðskiptavini.

  • Ferran Soriano framkvæmdastjóri Manchester City hélt kynningu um starfsemi félagsins fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk undir yfirskriftinni „Management lessons from the football world“.

  • Skákmótið Arion Invitational var haldið með glæsibrag í september þar sem Guðmundur Kjartansson fór með sigur af hólmi.

  • Bankinn hélt kvennakvöld í tilefni af bleikum október þar sem 1,8 milljónir króna söfnuðust til styrktar Krabbameinsfélaginu.

  • Bankinn styrkti stóra yfirlitssýningu á verkum Birgis Andréssonar á Kjarvalsstöðum í janúar og hélt af því tilefni nokkra viðburði tengda sýningunni fyrir viðskiptavini, meðal annars fjölskylduleiðsögn og sérstaka foropnun.

  • Staðlaráð Íslands, Arion banki, Deloitte á Íslandi, Loftslagsskrá og Klappir grænar lausnir héldu opinn kynningarfund um kolefnisjöfnun í höfuðstöðvum Arion banka. Á fundinum voru flutt erindi þar sem ný tækniforskrift um kolefnisjöfnun var kynnt og hvernig hún mun nýtast á þeirri vegferð fyrirtækja að kolefnisjafna reksturinn sinn og við framleiðslu á vottuðum kolefniseiningum.

  • Ýmis fleiri félög og viðskiptavinir heimsóttu bankann og má nefna viðburði eins og fjárfestadag í hugverkaiðnaði og fiskeldi, fjártæknidag og heimsóknir frá atvinnuflugmönnum, bílasölum, ungum fjárfestum, samtökum kvenna í upplýsingatækni og MBA nemum frá Háskóla Reykjavíkur.

Ný styrktarstefna

Arion er í samstarfi við fjölda félagasamtaka og fyrirtækja og styður þau til góðra verka. Undir lok árs samþykkti bankinn nýja styrktarstefnu þar sem áhersla er lögð á að styrkir tengist kjarnastarfsemi bankans eða styðji við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, með sérstaka áherslu á þau markmið sem bankinn hefur í forgrunni:

  • Jafnrétti kynjanna (5)
  • Sjálfbær orka (7)
  • Góð atvinna og hagvöxtur (8)
  • Nýsköpun og uppbygging (9)
  • Ábyrg neysla og framleiðsla (12)
  • Aðgerðir í loftslagsmálum (13)

Við val á styrkþegum og samstarfsaðilum er einnig horft til stjórnarhátta, umhverfis- og loftslagsmála og félagsþátta. Þá er ferlið við styrkveitingar vel skilgreint og gagnsætt.

Skipting styrkja á árinu 2022
%

Styrkveitingar og samstarf á árinu

  • Arion banki var einn af aðalstyrktaraðilum Arctic Circle ráðstefnunnar sem fram fór í Hörpu í október. Markmið ráðstefnunnar er að stuðla að samtali og samstarfi um framtíð og þróun norðurheimskautsins, en mikilvægi norðurslóða mun aukast á næstu áratugum, ekki síst vegna loftslagsbreytinga. Ráðstefnuna sækir m.a. áhrifafólk úr stjórnmálum, efnahagslífi, háskólum og félagasamtökum.

  • Arion banki kostar forsetalista Háskólans í Reykjavík, en á forsetalistann komast þeir nemendur sem ná bestum námsárangri á hverri önn. Markmiðið með listanum er að hvetja nemendur sem ná framúrskarandi árangri í námi til dáða og vekja athygli á árangri þeirra. Nemendur á forsetalista HR hljóta styrk sem nemur skólagjöldum einnar annar.

  • Viðskiptavinir Arion og bankinn styrktu Rauða krossinn á Íslandi í tengslum við móttöku flóttafólks hér á landi. Rúmar fimm milljónir komu úr söfnunarbaukum í útibúum bankans um land allt og jafnaði bankinn upphæðina.

  • Arion banki er einn af styrktaraðilum HSÍ en bankinn hefur um árabil stutt við íslenskan handknattleik.

  • Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Íþróttasambands fatlaðra og styður undirbúning og þátttöku sambandsins fyrir mót ársins.

  • Bankinn stóð við bakið á Félagi kvenna í atvinnulífinu árið 2022 og hýsti meðal annars viðburð þeirra Sýnileikadaginn.

  • Bankinn styrkir Skógræktarfélag Íslands. Styrkurinn felur meðal annars í sér stuðning við framkvæmd verkefnisins „Skógarvist, skógargátt og lýðheilsa“, en verkefninu er ætlað að hvetja til útivistar og þar með bættrar lýðheilsu. Einnig nýtist styrkurinn til skógræktar.

  • Í lok árs gerðu Arion banki og íslenska sprotafyrirtækið SoGreen samstarfssamning í tengslum við kaup á óvirkum kolefniseiningum sem verða til að tryggja menntun stúlkna í Sambíu. Er bankinn þar með í hópi fjölbreyttra fyrirtækja, sjóða, félaga og stofnana sem mynda brautryðjendahóp og gera verkefni SoGreen í Sambíu að veruleika.

  • Þá styður bankinn við fjölda góðgerðamála á borð við Krabbameinsfélagið og Mæðrastyrksnefnd og útibú bankans um land allt við hin ýmsu málefni í sinni heimabyggð.

Nýsköpun og stuðningur við frumkvöðla

Nýsköpun er mikilvægur þáttur í starfsemi bankans og eflir samkeppnishæfni hans til lengri tíma litið. Stöðug og markviss skoðun á því hvort núverandi aðferðafræði varðandi vörur, þjónustu og verkferla sé best til þess fallin að stuðla að árangri er einn af lykilþáttum starfseminnar.

Á undanförnum árum hefur bankinn komið að fjölda spennandi fjárfestingarverkefna með viðskiptavinum, m.a. með það að markmiði að efla atvinnulíf hér á landi. Á það ekki síst við um hugverkaiðnaðinn sem er vaxandi atvinnugrein á Íslandi og er mikilvæg stoð í verðmætasköpun til framtíðar. Við leggjum okkur fram um að vera til staðar fyrir frumkvöðla og hvetjum til nýsköpunar og grósku með stuðningi og samstarfi.

Stuðningur Arion banka við nýsköpun og virk þátttaka í uppbyggingu efnahagslífsins styður við tvö af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, annars vegar það áttunda sem snýr að góðri atvinnu og hagvexti, og hins vegar það níunda sem snýr að nýsköpun og uppbyggingu.

Arion banki hefur fjárfest beint og óbeint í fjölda nýsköpunarfyrirtækja og tekið þátt í viðburðum sem tengjast nýsköpun.

  

Stefnumarkandi samstarfsaðilar

          

Betri þjónusta við aðila á leigumarkaði í gegnum Leiguskjól

Leiguskjól er gott dæmi um samstarfsaðila sem bankinn hefur valið að starfa með og styður við þjónustu bankans. Leiguskjól tók þátt í Startup Reykjavík hraðlinum árið 2018. Þar hófst fjárfesting bankans í félaginu þegar bankinn eignaðist 6% hlut. Á árinu 2019 gerði bankinn samstarfssamning við félagið ásamt því að auka við fjárfestingu sína í félaginu og á bankinn nú 51% hlut. Fjárfestingin og samstarfssamningurinn við Leiguskjól eru liður í áherslu bankans á aukið samstarf við fjártæknifélög þar sem markmiðið er meðal annars að nýta grunnstoðir bankans og tengja við þann fókus og kraft sem felst í frumkvöðlastarfi.

Eyrir Sprotar – fjárfestingar í sprotafyrirtækjum

Arion banki er í samstarfi við Eyri Invest um rekstur sprota- og vaxtarsjóðsins Eyrir Sprotar slhf. Eyrir Invest og Arion banki eru stærstu hluthafar sjóðsins. Sjóðurinn er 6 ma. kr. að stærð og hefur fjárfest í ellefu fyrirtækjum.

Efling nýsköpunar á fjármálamarkaði með Fjártækniklasanum

Arion banki er aðili að Fjártækniklasanum sem er liður í að efla samstarf við fjártæknifélög. Tilgangur Fjártækniklasans er að efla nýsköpun í fjármálum. Að auki starfrækir Fjártækniklasinn nýsköpunarsetur og stendur fyrir ýmiss konar viðburðum. Í samstarfi við fjártækniklasann hélt Arion banki fjártæknistefnumót á árinu, með það að markmiði að kynna nýsköpunarfyrirtæki fjártækniklasans.

Stuðningur við unga frumkvöðla

Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Samtökin hafa það hlutverk að búa ungt fólk undir framtíðina og auka færni þess til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í framhaldsskólum. Samtökin stóðu fyrir samkeppni meðal framhaldsskólanema á árinu sem gaf nemendum færi á að kynnast frumkvöðlastarfinu af eigin raun í námi sínu. Alls voru 124 fyrirtæki stofnuð í samkeppninni í ár og 35 fyrirtæki kepptu til úrslita. Fyrirtækið HAF vítamín, sem er í eigu sex nemenda við Menntaskólann við Sund, var valið fyrirtæki ársins og keppti fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fór fram í Tallinn í Eistlandi.

Leitar sjóður – fjárfest í frumkvöðlum

Arion Banki fjárfesti á árinu í Leitar Capital Partners ehf. og fyrsta sjóði félagsins. Leitar Capital Partners er nýtt félag sem leggur áherslu á fjárfestingar í ungu og öflugu fólki og styður það við að finna fyrirtæki til að kaupa og reka. Félagið er skráður rekstraraðili sérhæfðra sjóða og hefur lokið 1,5 milljarða króna fjármögnun í fyrsta fjárfestingarsjóði félagsins. Fjárfestingarsjóðurinn mun fjárfesta í svokölluðum leitarsjóðum (e. search funds), en leitarsjóður er heiti yfir einkahlutafélag sem er stofnað utan um ungan frumkvöðul, oft nefndur leitari. Leitarinn fær fjármögnun til að leita að fyrirtæki til að kaupa, tekur við sem framkvæmdastjóri við kaup, fær hlut í fyrirtækinu og stýrir því svo í gegnum umbreytingu og vöxt þar til það er selt aftur. Markmið verkefnisins er að sameina krafta ungra og metnaðarfullra frumkvöðla við reynslu og þekkingu öflugra fjárfesta með kaupum á góðu fyrirtæki sem hefur tækifæri til vaxtar.

Frágangur – spennandi sprotafyrirtæki

Arion Banki fjárfesti á árinu í þriðjungshlut í Bílafrágangi ehf. og gengur þar til liðs við stofnendur félagsins. Frágangur er nýsköpunarfyrirtæki sem var stofnað árið 2020 en markmið þess er að auka öryggi og neytendavernd í bílaviðskiptum með stafrænum lausnum. Lausn Frágangs gerir öllum þeim sem koma að ökutækjaviðskiptum kleift að eiga örugg, einföld og hröð viðskipti. Lausnin felur í sér alla skjalagerð sem tengist viðskiptunum, þar á meðal kaupsamninga, eigendaskipti og fjármögnun.


Fyrirtækið HAF vítamín, sem er í eigu sex nemenda við Menntaskólann við Sund, var valið fyrirtæki ársins 2022 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi (JA).

Fréttir af sjálfbærni