Fjárhagsleg markmið og árangur
Arion banki starfar samkvæmt skýrum fjárhagsmarkmiðum sem bankinn birtir opinberlega. Fjárhagsmarkmið bankans voru uppfærð í árslok 2022 og gilda til næstu ára. Rekstur Arion banka gekk vel á árinu 2023 og náðust nær öll fjárhagsleg markmið.
Markmið ársins 2023
Arion banki birtir helstu fjárhagsmarkmið bankans í kauphöll og árshlutauppgjörum bankans. Hér má sjá fjárhagsmarkmið fyrir árið 2023 og þann árangur sem náðist.
Markmið | 2023 | |
---|---|---|
Arðsemi eigin fjár | Umfram 13% | 13,6% |
Kjarnatekjur/áhættugrunnur | Umfram 6,7% | 7,1% |
Iðgjaldavöxtur | Iðgjaldavöxtur (m.t.t. hluta endurtryggjenda) verði 3% umfram iðgjaldavöxt á innanlandsmarkaði |
15,0% (iðgjaldavöxtur innanlands var um 10,2% fyrstu 9 mánuði ársins) |
Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum | Lægra en 48% | 44,7% |
Hlutfall eiginfjárþáttar 1 | 150-250 bps stjórnendaauki | 480 bps |
Arðgreiðsluhlutfall | 50% | 50% |
Eins og sjá má náði bankinn nær öllum sínum fjárhagsmarkmiðum á árinu 2023 að undanskildu markmiði um eigið fé.
Markmið um að hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 sé á bilinu 16,4%-17,4% náðist ekki. Bankinn var í árslok með alls 13-23 milljarða króna í umfram eigið fé og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,7%. Arðgreiðslur og endurkaupaáætlun bankans eru liður í því að ná þessu markmiði. Arðgreiðslustefna Arion banka kveður á um að bankinn greiði sem nemur 50% af hagnaði í arð auk þess sem frekari arðgreiðslur eða endurkaup eigin hlutabréfa geti farið fram þegar bankinn ræður yfir eigin fé sem er umfram kröfur eftirlitsaðila og að viðbættum stjórnendaauka. Markmið bankans er að viðhalda hlutfalli almenns eigin fjár þáttar 1 150-250 bp yfir kröfum eftirlitsaðila. Til skemmri tíma horfir bankinn einnig til viðmiða matsfyrirtækja við eiginfjárstýringu. Þetta á einkum við um BBB einkunn bankans frá Standard & Poor’s, en til þess að viðhalda þeirri einkunn þarf bankinn að auka við eigið fé þáttar 1 þannig að hlutfall þess sé á bilinu 4-5 prósent af áhættugrunni yfir lögbundnum eiginfjárkröfum. Útgefandaeinkunn Arion banka frá Moody's er A3, og horfur metnar stöðugar.
Stjórn bankans leggur til að um 13 milljarða króna arður verði greiddur á árinu 2024 vegna ársins 2023, að teknu tilliti til eigin bréfa bankans, sem samsvarar 9,0 krónum á hlut. Í mars 2023 greiddi Arion banki út 12,5 milljarða króna arð, sem samsvarar 8,5 krónum á hlut.
Uppfærð markmið tóku gildi fyrir árið 2023
Á árinu 2022 voru samþykktar breytingar á fjárhagsmarkmiðum Arion banka sem voru í gildi fyrir árið 2023. Breytingarnar snéru annars vegar að markmiðinu um lánavöxt, sem var fellt niður, og hins vegar að mælikvörðum sem taka mið af rekstrartekjum.
Fallið var, a.m.k. tímabundið, frá markmiði um lánavöxt vegna ákveðinnar óvissu í efnahagsumhverfi bankans. Ekki var talið rétt að bankinn væri bundinn af markmiði um lánavöxt í slíku árferði heldur þyrfti hann að geta brugðist við aðstæðum hverju sinni.
Þeir tveir mælikvarðar sem snúa sérstaklega að rekstrartekjum, kostnaðarhlutfall og hlutfallið rekstrartekjur/áhættuvegnar eignir, taka ekki til fjármunatekna heldur aðeins þeirra tekna sem bankinn hefur skilgreint sem kjarnatekjur, þ.e. vaxta- og þóknanatekna og tekna af tryggingastarfsemi.
Skýr markmiðasetning lykill að árangri
Fyrir utan þessi fjárhagslegu markmið eru fjölþætt markmið sem bankinn, svið hans og starfsfólk starfa eftir. Fjölmörg þeirra eru mikilvægur liður í kaupaukakerfi bankans og er þróun þeirra sýnileg starfsfólki allt árið. Sem dæmi um slíka mælikvarða má nefna þekkingu á viðskiptavinum (KYC/AML), uppitíma apps og netbanka og ánægju viðskiptavina.