Stefna og framtíðarsýn
Viðskiptavinir Arion hafa fjölbreytt og ólík markmið sem eru birtingarmynd þess metnaðar og krafts sem í þeim býr. Og þann kraft viljum við virkja. Við viljum vera drifkraftur árangurs viðskiptavina okkar – á Íslandi og víðar á norðurslóðum – með því að bjóða fjölbreyttar og snjallar fjármálalausnir sem mæta þörfum þeirra og stuðla þannig að árangri þeirra, okkar og samfélagsins alls.
Á árinu 2023 samþykkti stjórn Arion banka nýja stefnu bankans, ný gildi og þjónustuviðmið.
Stefna Arion banka
Hlutverk okkar er að liðsinna þeim sem vilja ná árangri á Íslandi og víðar á norðurslóðum með snjöllum og traustum fjármálalausnum sem efla fjárhagslegt heilbrigði og stuðla að sjálfbærri verðmætasköpun.
Framtíðarsýn okkar er að vera best í að mæta þörfum markhópa okkar – leiðandi fyrirtæki sem er drifkraftur árangurs viðskiptavina og samfélagsins alls.
Tilgangur okkar er að virkja kraft norðursins.
Gildi
Gildin lýsa viðhorfi okkar og hvernig við nálgumst okkar störf.
Komum hreint fram
- Við ástundum góða viðskiptahætti með sjálfbærni að leiðarljósi.
- Við erum hreinskiptin og bendum á það sem betur má fara.
- Við gætum trúnaðar í hvívetna og komum fram af virðingu.
Finnum lausnir
- Við erum jákvæð og lausnamiðuð í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur.
- Við trúum því að skapandi hugsunarháttur og lifandi frumkvæði leiði til snjallra lausna.
- Við erum meira en banki – við erum úrræðagóður samstarfsaðili sem hjálpar fólki og samfélögum að ná árangri.
Vinnum saman
- Við berum sjálf ábyrgð á að skapa starfsumhverfi sem er auðgandi, skemmtilegt og hvetjandi.
- Við temjum okkur nána samvinnu, bæði milli sviða og við samstarfsaðila.
- Við vinnum með viðskiptavinum okkar svo þeir nái markmiðum sínum.
Við höfum jafnframt sett okkur siðareglur sem stuðla að ábyrgri ákvarðanatöku. Siðareglurnar má nálgast hér.
Þjónustuviðmið
Með því að bjóða upp á alhliða fjármálaþjónustu og tryggingar fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta geta viðskiptavinir okkar fengið heildstæða yfirsýn yfir öll fjármál sín á einum stað. Þannig mætum við ólíkum þörfum og nýtum um leið sérþekkingu okkar svo að viðskiptavinir nái sem mestum árangri.
Við viljum að upplifun viðskiptavina okkar sé einstök og höfum sett okkur viðmið sem öll okkar þjónusta á að uppfylla. Þjónustuviðmiðin eru okkar vegvísir við veitingu og þróun þjónustunnar og mikilvægur hlekkur í því að verða best í að mæta þörfum markhópa okkar. Þau eru skrifuð frá sjónarhorni viðskiptavina og lýsa því hvernig við viljum að þeir upplifi þjónustu okkar.
Einfalda lífið
- Hugsa um mína hagsmuni
- Bregðast hratt við og eru sveigjanleg
- Leiðbeina og klára málin með mér
Standa með mér
- Sýna mér skilning og áhuga
- Þekkja mína sögu og taka frumkvæði
- Leggja metnað í að ég nái árangri
Gleðja mig
- Sýna gleði og metnað í starfi
- Koma mér á óvart með sniðugum lausnum
- Láta mér líða eins og ég sé á réttum stað
Sjálfbær verðmætasköpun
Með snjöllum og traustum fjármálalausnum viljum við efla fjárhagslegt heilbrigði og stuðla að sjálfbærri verðmætasköpun. Við viljum jafnframt vera öðrum fyrirmynd um ábyrga og arðbæra viðskiptahætti sem taka mið af umhverfi og samfélagi. Við leggjum áherslu á að samfélagsábyrgð og sjálfbærni séu hluti af daglegri starfsemi bankans, ákvarðanatöku og ferlum.
Við gerum okkur grein fyrir því að mestu áhrifin sem bankar geta haft er í gegnum lánveitingar og fjárfestingar og við tökum þá ábyrgð alvarlega. Við viljum efla fjárfestingar kvenna og jafna hlut kynjanna á fjármálamarkaði og á árinu 2023 réðumst við í langtíma átaksverkefni með það að markmiði. Við höfum jafnframt sett okkur metnaðarfulla umhverfis- og loftslagsstefnu því við viljum leggja okkar af mörkum svo Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu og öðrum innlendum og alþjóðlegum umhverfis- og loftslagssáttmálum. Við bjóðum viðskiptavinum okkar græna fjármálaþjónustu, svo sem græn bílalán, innlán, íbúðalán, fyrirtækjalán og græna sjóði Stefnis.
Þinn árangur
Árangur getur verið alls konar. Við erum öll ólík og markmið okkar eru fjölbreytt en við stefnum öll fram á við og árangur viðskiptavina – þinn árangur – er það sem við stefnum að.
Árangur viðskiptavina
Hvort sem um ræðir stórfyrirtæki sem fjárfestir í umhverfisvænni framleiðslu eða sprotafyrirtæki í leit að fjármögnun, ungt fólk á leið í nám erlendis eða eldra fólk að byggja upp eignasöfn og tryggja fjárhagslegt öryggi á efri árum, þá erum við alltaf að vinna að árangri viðskiptavina okkar.
Árangur samfélagsins
Verkefnin sem við fjármögnum hafa mikil áhrif á samfélag okkar og umhverfi. Við höfum trú á kraftmiklu atvinnulífi og erum leiðandi í grænni fjármögnun og ætlum okkur að vera það áfram.
Árangur eigenda
Þúsundir Íslendinga eru hluthafar í Arion, bæði beint en líka óbeint í gegnum lífeyrissjóði. Við erum meðvituð um okkar ábyrgð og höfum metnað til þess að skila eigendum okkar auknum verðmætum.
Árangur starfsfólks
Starfsfólk bankans er fjölbreyttur hópur fólks sem á það sameiginlegt að hafa metnað fyrir störfum sínum. Við leggjum okkur fram við að byggja upp vinnustað þar sem kunnátta, þekking og færni fá að njóta sín.